laugardagur, maí 09, 2009

Sól, sól skín á mig

Þá er farið að styttast óðum í heimkomu... ekki nema 10 dagar þar til við komum til Íslands og verðum í allt sumar! Það verður að viðurkennast að ég er farin að hlakka bara nokkuð mikið til:) Er að byrja að plana útilegur og gönguferðir og partý og alls konar skemmtilegt. Er að spá í að byrja sumarið með afmælispartýi þannig að frekari frétta af því er að vænta!!

Þangað til við komum heim er samt meira en nóg að gera, er að vinna eins og vitleysingur, legg af stað með lestinni 6.30 að vanda og er að koma heim um 9 á kvöldin... bara 6 vinnudagar eftir (guði sé lof!!!). Þar að auki var ég að komast að því að skattaskýrsluárið hér í englandi nær frá 9.apríl til 8.apríl svo mínar tekjur skiptast á tvö skattaár og er ég því undir skattleysismörkum bæði árin!! Kvarta ekki yfir því:)

Annars á eftir að græja ýmislegt og fara í búðir og svona fyrir heimkomu þannig að það verður nóg að gera...

Vonandi að verðrið á Íslandi sé orðið gott!!!! Hlakka svo bara til að sjá alla þegar við komum heim....

Guðný

Engin ummæli: