þriðjudagur, júní 17, 2008

Hæ hó jibbí jejj og jibbíi jeijjj

ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ!!!!!!!!!!!!!!!!

Tvöföld ástæða til að gleðjast í dag.... það mikilvægasta að sjálfsögðu það að síðasta prófið á þessari önn var í morgun og ég er þarafleiðandi komin í rúmlega 4 vikna frí:) Þetta er búin að vera þvílík törn og það veitir sko ekki af þessu fríi núna til að halda geðheilsunni!

Í öðru lagi er að sjálfsögðu þjóðhátíðardagur Íslands og ég auðvitað í skrúðgöngu-fílingnum, vantar bara skátabúninginn:)

Þessu verður fagnað í kvöld þegar bekkurinn ætlar út að borða og svo tjútt á eftir. Á reyndar eftir að sjá að við finnum stað til að tjútta á í Perth á þriðjudagskvöldi en sjáum til.

Til hamingju með daginn Íslendingar...

3 ummæli:

ÍsBirna sagði...

Til hamingju með að vera komin í sumarfrí!! Hið ljúfa líf framundan næstu 4 vikurnar!! Hljómar næs! Hlakka til að fá ferðasöguna!!
Geggjað verður hér heima á 17.júní aldrei þessu vant!! :)

Linda sagði...

Til hamingju með prófalokin!!!!

Spólan sagði...

Ja vaaa.... prof... biddu.. juni... hmmm... til lukku min kaera! Tok vitlausa flugvel og lenti i Brussel... var alveg a leidinni til Astralalaliu... hmmm... naest, naest...

Knus ur belgiska sukkuladinu
Olof Inga