þriðjudagur, september 07, 2004

Einn nokkuð góður

Kona ein var að steikja egg handa sínum heitt elskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inní eldhúsið. Varlega varlega...! Settu meira smjör! Guð hjálpi mér...! Þú ert að steikja of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA! Við þurfum meira smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR! Eggin munu festast! Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T! Konan horfði á hann og sagði. " Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?" Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér á finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum.

Engin ummæli: